9.1.2012 | 07:28
Algengt því miður
Ef gengið er um útsölur t.d. í Hagkaup núna má sjá að það eru ótrúlega margir nýir verðmiðar á vörum og sést að annar miði hefur verið rifinn af. Áður var það oft þannig að starfsfólkið límdi bara yfir en harkaleg mótmæli hafa greinilega orðið til þess að nú er þeim gert að rífa miðann af áður en nýr er settur.
Það er því miður erfitt fyrir neytandann að gera nokkuð í þessu annað en sleppa því að versla í þessum búðum. Eða koma með dæmi, t.d. úr bæklingum sem streymdu í hús fyrir jólin og sýna fram á að verðið hefur verið hækkað fyrir útsöluna.
Þetta er ekki til að auka traust manna á versluninni.
|
Hækka verð fyrir útsölur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
1.7.2011 | 10:07
Samt hækkar bensínið hér?
29.6.2011 | 07:50
Skyldi það lækka hið fáránlega háa tímaverð lögfræðinga?
Það er stundum talað um að læknar séu dýrir en ef tala á við lögfræðing mætti halda að hvert orð sem út úr hans munni kemur sé demtantslagt - svo dýr er tíminn!
|
Aukin samkeppni blasir við meðal lögmanna á Íslandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.6.2011 | 11:14
Bara spurning um vilja
Um leið og einn lækkar, gerir annar það - það gleymist stundum að álagning er ansi stór þáttur í bensínverðinu alveg eins og skattarnir. Og enginn getur sagt að olíufélögin hangi á horriminni...eða hvað?
Þó álögur séu miklar á bensín og best væri að hafa þær minni, þá er það svo að þær eru beintengdar verðinu, þ.e. innkaup + álagning.
Einhvern veginn er það alltaf svo að verðið er eins hátt og hægt er - hækkar um leið og kemur smálykt af hækkun erlendis en lækkar ekki fyrr en búið er næstum að snúa upp á handlegginn á olíufélögunum - benda þeim á að erlenda verðið sé nú svona og svona lágt - eða ef einhver einn þeirra sýnir smá samkeppnisskap - og lækkar.
Hinsvegar er ekki samkeppni fyrir 5 aura hér á landi - það munar 10 aurum hið mesta á verði og ef þetta er ekki samráð þá heiti ég Pétur.
Samkeppni felst í því að bjóða lægra verð en hinir og með lægra verði á ég við eitthvað meira en 10 aura. Það nennir enginn að eltast við svoleiðis. Leiðin hefur verið að bjóða fólki kort og lækka með því um 2-3 krónur, sem er líka bara bull.
Semsagt - hér ríkir ekki samkeppni milli olíufélaganna nema kannski í því að bjóða sem flestar gerðir af sælgæti á bensínstöðvunum. Það má fækka þeim talsvert (bensínstöðvunum) og þannig ná niður kostnaði við reksturinn - ef einhver alvöru vilji er fyrir hendi.
|
Eldsneytisverð lækkar enn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.3.2011 | 17:08
og? á það ekki að lækka hér? nei...
Hefði fréttin verið: hækkar...þá værum við búin að sjá enn frekari hækkun hér. Held að ríkisstjórnin ætti að hlutast til um að álagning olíufélaganna lækkaði - og þau sjalf ættu að fækka útsölustöðum og þar með minnka kostnaðinn - sem gæti þá skilað sér í lægra bensínverði hér.
En nei, það gerist ekki. Það má ekki hrófla við stórfurstum.
|
Olíuverð lækkar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
14.3.2011 | 19:17
Merkilegra fólk en annað?
|
Með 21 milljón í árslaun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
6.3.2011 | 13:30
Er í alvörunni ekkert hægt að gera?
|
Laun bankastjóra Arion banka 46 milljónir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.2.2011 | 11:08
Takk!
Það verður sífellt augljósara að í landinu eru tvær þjóðir. Önnur fær peninga á færibandi á meðan hin má eta það sem úti frýs.
Virðingin fyrir þeim sem minnst hafa, þeim sem berjast í bökkum vegna þess að launin duga ekki fyrir grunnþörfum - er engin. Á meðan er skriðið fyrir öðrum.
Kærar þakkir - vel launuðu og vel settu starfsmenn Kjararáðs. Nú er væntanlega kominn tími til að við fáum Kjararáð til að ákvarða laun almennings líka. Það skilar mun meiru en langir samingafundir þar sem barist er um 100 kalla til handa launafólki!
|
Dómarar fá 101.000 kr. launahækkun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
4.2.2011 | 12:53
Þetta er alltaf og verður alltaf spurning um framboð og eftirspurn
Ef eftirspurnin minnkar (færri kaupa bensín) skapast ALLTAF svigrúm fyrir lækkun - sem annars hefði ekki gerst. Merkilegt...
Olíufélögin seilast ansi djúpt í vasa neytenda, enda þarf mikla peninga til að greiða toppunum laun, halda úti dýrum byggingum og allt annað sem þau eru að gera. Eina leiðin til að lækka bensín er að nota minna af því - svo einfalt er það.
|
Verðstríð á bensínmarkaði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
25.1.2011 | 10:52
Olíuverðið á http://oilprice.com/
|
Olís hækkar eldsneytisverð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


martasmarta
natturbarn
lillo
kjartan
apalsson
katrinsnaeholm
heidistrand
skralli
sssx32
olafurfa
stefanjon
bustadahverfi
jonabjorgsaetran
gattin
alit
kt
gammur
thoragudmanns




