Algengt því miður

Það að hækka verð fyrir útsölur er afar algengt og ég hef séð mörg dæmi þess. Reyndar bloggað um það áður og þá tekið stórverslanirnar Hagkaup og Debenhams sérstaklega fyrir því þar virðist þetta vera regla.
Ef gengið er um útsölur t.d. í Hagkaup núna má sjá að það eru ótrúlega margir nýir verðmiðar á vörum og sést að annar miði hefur verið rifinn af. Áður var það oft þannig að starfsfólkið límdi bara yfir en harkaleg mótmæli hafa greinilega orðið til þess að nú er þeim gert að rífa miðann af áður en nýr er settur.
Það er því miður erfitt fyrir neytandann að gera nokkuð í þessu annað en sleppa því að versla í þessum búðum. Eða koma með dæmi, t.d. úr bæklingum sem streymdu í hús fyrir jólin og sýna fram á að verðið hefur verið hækkað fyrir útsöluna.
Þetta er ekki til að auka traust manna á versluninni.
mbl.is Hækka verð fyrir útsölur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líma þeir yfir miðana í hagkaup??? Ég veit ekki betur en að hagkaup hafi hætt að líma verðmiða á vörur á fyrri hluta síðustu aldar. Ert þú eitthvað í tímaflakkinu eða?

Magnús (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 09:31

2 identicon

Flestir íslendingar eru algjörir "suckers" eins og það heitir á mannamáli erlendis.  Hvernig sem það er með flesta íslendinga þá hef ég lært að kaupa allt sem kaupa má frá útlöndum í gegnum netviðskipti.

Jonsi (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 09:37

3 Smámynd: corvus corax

Það er búið að hækka verð fyrir útsölur hér á landi eins lengi og ég man þannig að þetta er ekkert nýtt!

corvus corax, 9.1.2012 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband